Vá það
er aldeilis hvað það hafa farið margir til að skoða þessa
síðu í dag. Ég vil byrja á að þakka ykkur
fyrir og einnig kærar kveðjur sem ég hef
fengið.
Allt um það
sumarið byrjaði hjá mér í gær. Það byrjaði reyndar
líka hjá ykkur hinum en hjá mér eru þrjú atriði sem að gera það að
verkum að sumarið er komið. Það er að ég fæ
svartfuglsegg og kemst í veiði, fyrst á svartfugl og síðan í
silung. Ég er semsagt búinn að fara á
svartfuglaskytteri og svo fór ég til að veiða silung í
gær. Reyndar fékk ég engan silung en það skipti
ekki máli því ég fór með góðum vini og var með
nesti. Lagði mig úti í náttúrunni eftir að hafa
drukkið te og borðað flatkökur með hangiketi. Mér var nefnilega
boðið í Staðará á sunnanverðu Snæfellsnesi. Ég
fór þangaði í fyrra og fékk nokkra fiska, bleikjur og
sjóbirtinga. Því var vel þess virði að fara og
kanna hvort að bleikjan væri farin að láta sjá sig en svo reyndist
þó ekki vera. Það kemur bara annar dagur og
önnur ferð sem að gengur betur þannig að ég þurfi ekki að koma
öngulsár heim.

Staðará á
Snæfellsnesi
Eftir að ég
kom heim þá fékk ég æði og klippti niður limgerðið milli mín og
nágranna míns. Hann vissi hins vegar af því þar
sem að það var búið að ræða þetta í fyrravor en við erum ekki að
æsa okkur hér í Móabarðinu þannig að ég lét verða af þessu
núna. Því standa ekki nema meters stubbar upp úr
moldinni en þeir ætla sér hins vegar að stækka vel í sumar enda er
spáð að þetta verði heitasta sumar sem komið hefur hér á landi í
aldaraðir.
Í dag var svo
verulega stutt vinnuvika þannig að ég ætla að nota helgina og biðja
hana Lindu mína að kenna mér svolítið á bloggið og hvernig á setja
inn myndir, þó aðalega Ego-myndir eins og hún kallar
það. Það eru myndir af mér að veiða, mér að
veiða og mér að veiða. Svo verða hugsanlega
einhverjar myndir af mér og einhverjum öðrum að veiða, nei bara
grín.